4.5
TVÍBURATENGITAUG, 100% TVEGGJA FÓTA NOTKUN: Tvíburatengitaugar með höggdeyfi er hægt að nota til
áframhaldandi fallvarnar (100% tveggja fóta notkun), á meðan farið er upp, niður eða til hliðar (sjá skýringarmynd
13). Með því að hafa annan fótinn festan við festingu getur starfsmaðurinn fært sig á annan stað, fest ónotaða
fótinn við aðra festingu og losað svo hinn fótinn frá upprunalegu festingunni. Þessa aðgerð skal endurtaka þar til
starfsmaðurinn er kominn á þann stað sem hann óskar eftir. Hafa skal eftirfarandi í huga þegar tvíburatengitaug er
notuð með 100% báðum fótum:
•
Festið báða fætur tengitaugarinnar ekki við sömu festingu (sjá skýringarmynd 14A).
•
Ef fleiri en ein festing er tengd við einfalda festingu (hring eða auga) getur verið að festingin sé ekki lengur í
samræmi, þar sem festingarnar stangast á og því er ekki mælt með slíku.
•
Festing hvors fótar dragreipisins við sitthvoran festistaðinn er ásættanleg (skýringarmynd 14B).
•
Allir festistaðir verða að uppfylla festingarkröfur sem skilgreindar eru í kafla 1.
•
Festið aldrei fleiri en einn starfsmann við tvíburatengitaugina (skýringarmynd 14C) samtímis.
•
Látið fætur dragreipisins ekki flækjast eða vefjast um hvorn annan þar sem það getur hindrað þá í að dragast
upp.
•
Látið fætur dragreipisins ekki fara undir handleggi eða fótleggi við notkun.
4.6
FALLVARNARTAUG FYRIR BRÚNIR: Tilgreindur búnaður (sjá skýringarmynd 1) er viðurkenndur til notkunar yfir
sléttar stálbrúnir með 0,5 mm (0,02 tommu) radíus (r). Svipaðar brúnir eru á: völsuðum stálsniðum, viðarbjálkum
eða klæddum eða ávölum þakriðum. Samt sem áður skal hafa áðurgreind atriði í huga þegar búnaðurinn er notaður í
láréttri eða þverlægri uppsetningu og hætta er á að fall úr hæð yfir brún eigi sér stað:
•
Ef áhættumatið sem gert er áður en vinnan hefst leiðir í ljós að brúnin sé mjög „skörp" og/eða ekki „fullslétt"
(t.d. ef um ræðir óklætt þakrið, ryðgaðan bita eða steypta brún): Gera skal viðeigandi varúðarráðstafanir áður en
vinna hefst til að koma í veg fyrir fall fram yfir brún, eða setja upp brúnvörn, eða hafa samband við framleiðanda.
•
Festistaðurinn má eingöngu vera í sömu hæð og brúnin sem fallið getur átt sér stað yfir eða fyrir ofan hana.
•
Horngráða endurbeiningar dragreipisins við brúnina sem fall getur átt sér stað yfir (mælt á milli beggja hliðanna
sem endurbeiningartaugin myndar) á að vera a.m.k. 90 gráður.
•
Til að draga úr hættunni á að fall endi í því að viðkomandi sveiflist til skal takmarka vinnusvæðið eða
hliðarhreyfingu beggja vegna miðássins við 1,50 m í mesta lagi.
4.7
DRAGREIPI TIL VINNU Á HEITUM SVÆÐUM: Tilgreindur búnaður (sjá skýringarmynd 1) með Kevlar-efni
er ætlaður til notkunar á svæðum þar sem hitastig er hátt, en takmarkast við: Kevlar-efni byrjar að sviðna við
425-480°C. Snertiþol Kevlar-efnis er takmarkað þegar hitastig er allt að 535°C. Pólýester-efni tapar styrkleika sínum
við 145-200°C. Bræðslumark PVC-húðunar á vélbúnaði er um 175°C .
5.0 SKOÐUN
5.1
SKOÐUNARTÍÐNI: Dragreipið með höggdeyfingunni skal skoða með því millibili sem tekið er fram í hlta 2.
Skoðunaraðferðum er lýst í „Eftirlits- og viðhaldsskrá" (tafla 2).
;
Erfiðar vinnuaðstæður (óblítt umhverfi, langvarandi notkun, o.s.frv.) geta haft í för með sér tíðari skoðun.
5.2
ÓÖRUGGAR AÐSTÆÐUR EÐA GALLAR: Ef gallar koma í ljós við skoðun, skal fjarlægja dragreipið umsvifalaust úr
umferð og farga því til að koma í veg fyrir að það sé notað fyrir slysni. Dragreipi eru ekki viðgerðarhæf.
5.3
LÍFTÍMI VÖRU: Endingartími höggdeyfandi 3M dragreipa ræðst af vinnuaðstæðum og viðhaldi. Hámarkslíftími getur
verið frá 1 ári við mikla notkun í öfgakenndum aðstæðum til 10 ára ef notkun er lítil og aðstæður eru vægar. Nota má
vöruna áfram svo lengi sem hún stenst skoðunarkröfur og það í allt að 10 ár.
139