1. LÝSING Á VÖRUNNI, TILGANGUR, LEIÐBEININGAR
OG FRÁBENDINGAR
HANDBIKE BATEC HIBRID varan breytir handvirkum hjólastól í han-
dknúið þríhjól með rafmagnsaðstoð. Það gerir fólki með fötlun sem
notar hjólastól kleift að fara lengri vegalengdir og erfiðari leiðir en
mögulegt væri með handvirkum hjólastól einum saman. Þetta gerir
þau sjálfstæðari í daglegu lífi og hjálpar þeim að fá heilsusamlega
líkamsrækt.
HANDBIKE BATEC HIBRID er með CE merkingu sem lækningatæki í I
flokki samkvæmt kröfum reglugerðar (ESB) 2017/745 um lækningatæki.
Fyrst þarf að tengja handhjólið við hjólastólinn. Þegar búið er að tengja
báða hlutana, erum við komin með hjólastól samsettan af þremur hjó-
lum, sætinu í hjólastólnum og drifinu í framhjólinu. Til að handhjólið vir-
ki þarf að virkja drifið í handhjólinu, með því að hjóla með stýringunum
eða með því að nota inngjöfina. Á þennan hátt er framhjólið knúið.
Markmið þessarar vöru er að veita fólki með fötlun sem notar hjólastól
(fólk með fötlun sem kemur í veg fyrir að það geti gengið), aðlaðandi
og hagnýta vöru, sem er gagnleg í daglegu lífi og til að stunda afþre-
yingu og íþróttir.
Þökk sé stillingum vörunnar þá getur notandinn farið í lengri og flók-
nari ferðir en hægt er að fara í eingöngu á hjólastól, sem eykur sjálfs-
tæði og sjálfsstjórn.
– 6 –
LEIÐBEININGAR
HANDBIKE BATEC HIBRID er ætlað eftirfarandi notendum:
• Einstaklingum með hreyfihömlun í fótleggjum, sem eru hjólastóla-
notendur, án hreyfihömlunar í handleggjum og sem hafa full not af
höndunum. Stöðluðu gerðirnar, eða PARA, eru ætlaðar þessum no-
tendum.
• Einstaklingar með hreyfihömlun í fótleggjum, sem eru hjólastóla-
notendur, með einhverja hreyfihömlun í handleggjum, með góða
virkni handleggja og hlutavirkni í höndum, en nóg til að nota inn-
gjöf, bremsa og beygja án áhættu. Gerðin QUAD er ætlað þessum
notendum. Einstaklingar með mænuskaða mega í mesta lagi verið
hreyfihamlaðir upp að C6 geta notað QUAD útgáfuna. Nauðsynlegt
er að hafa góð not af upphandleggsvöðvum og góða hreyfifærni í
úlnliðum.
Af öryggisástæðum, mega aðeins þeir nota HANDBIKE BATEC HIBRID
sem:
• Hafa fengið leiðbeiningar um hvernig eigi að stjórna því.
• Eru í líkamlegu og sálrænu ástandi til að stjórna því á öruggan hátt
við allar aðstæður.
• Geta hemlað í hjólastólnum og stöðvað hann ef tækið bilar.
FRÁBENDINGAR
Ekki er mælt með HANDBIKE BATEC HIBRID í eftirfarandi tilvikum:
• Fólk sem ekki er í líkamlegu og/eða sálrænu ástandi til að ferðast um
á öruggan hátt í kringumstæðum þar sem er umferð.
• Fólk sem vegur yfir 110 kg.
• Fyrir quad gerðina, fjórlamað fólk sem hefur ekki að minnsta kosti þá
hreyfigetu í handlegg sem lýst er í þessari notendahandbók.
– 7 –