8. TRYGGING
8.1. TRYGGINGARTÍMI
BATEC MOBILITY tryggir alla fasta hluta og burðargrind í þrír (3) ár frá
afhendingu, gegn göllum í efni og framleiðslu, fyrir þann eiganda sem
upprunalega er skráður.
BATEC MOBILITY tryggir RAFHLÖÐUNA í einn (1) ár frá afhendingu,
gegn göllum í efni og framleiðslu, fyrir þann eiganda sem upprunale-
ga er skráður. RAFHLAÐAN er álitin einnota.
8.2. TRYGGINGARSKILYRÐI
• Einnota hlutir (að RAFHLÖÐUNNI undanskilinni sem er tryggð í 1 ár)
falla ekki undir trygginguna, nema um sé að ræða ótímabæra eyðin-
gu á þeim hlutum vegna galla í framleiðslu. Þessir hlutar eru meðal
annars dekk, slöngur, handföng, bremsu-, gíra- og festingakaplar,
hjólin á festibúnaðinum og samsvarandi hlutar.
• Ef upp kemur spurning varðandi tryggingu mælir BATEC MOBILITY
með því að þú hafir fyrst samband við viðurkennda dreifiaðilann þinn,
til að finna lausn á vandanum.
• BATEC MOBILITY axlar ekki ábyrgð ef upp koma vandamál með vöru-
na vegna geymslu eða rangrar notkunar á henni. Ef BATEC MOBILITY
telur að einhver hluti hafa verið festur á rangan hátt, notaður rangt
eða geymdur á rangan hátt, nýtur kröfuhafinn ekki tryggingar. Hér
eru nokkur dæmi um slíkt:
– Varan eða hlutar hennar hafa ekki fengið viðhald í samræmi við
það sem mælt er með af BATEC MOBILITY í leiðbeiningabæklingi
notanda og leiðbeiningum um viðhald.
– Notaðir hafa verið aukahlutir sem ekki eru upprunalegir.
– 44 –
– HANDBIKE BATEC HIBRID eða hlutar þess hafa skemmst vegna
vanhirðu, slyss eða rangrar notkunar.
– Gerðar hafa verið breytingar á HANDBIKE BATEC HIBRID eða á hlu-
tum þess, sem ekki eru í samræmi við tilmæli BATEC MOBILITY, eða
viðgerðir framkvæmdar án samráðs við viðurkenndan dreifiaðila
eða viðurkennda viðgerðarþjónustu.
• Ef um kvörtun er að ræða hefur BATEC MOBILITY rétt til að óska eftir
því að allir hlutar séu sendir til BATEC MOBILITY af kröfuhafa og á
kostnað hans, til útskiptingar eða viðgerðar. Ef hlutarnir reynast ga-
llaðir ákveður BATEC MOBILITY hvort hlutunum verður skipt út, gert
við þá eða þeir notaðir áfram.
• Þessi trygging nær ekki yfir kostnað vegna flutnings, sendingar eða
vinnu við að fjarlægja eða setja upp aftur. BATEC MOBILITY rukkar
hvern þann kostnað sem til fellur ef talið er að hluturinn eða hlutarnir
séu ekki gallaðir eða ef um er að ræða að gallar þeirra falli ekki undir
trygginguna.
• Viðgerð eða útskipting á gölluðum hluta skal einungis eiga sér stað
af hálfu BATEC MOBILITY eða aðila sem viðurkenndur er af BATEC
MOBILITY og með réttindi til þess.
• BATEC MOBILITY tryggir ekki framboð eða hentugleika þeirra íhlu-
ta sem þarf í vörurnar þeirra og leggur ekki fram tryggingu, hvorki
beina né óbeina, umfram þá takmörkuðu tryggingu sem hér ke-
mur fram.
• Varahlutir sem settir eru upp á meðan á upprunalega tryggingartíma-
num stendur, njóta 2 ára ábyrgðar til viðbótar. Hvað varðar RAFHLÖÐU-
NA þá er litið á hana sem einnota og varahlutur nyti tryggingar í þann
tíma sem eftir væri af tryggingartíma upprunalegu RAFHLÖÐUNNAR,
í 1 ár frá afhendingardegi HANDBIKE BATEC HIBRID.
• Þetta tryggingu er ekki hægt að yfirfæra: Þessi trygging gildir einun-
gis gagnvart þeim notanda sem upprunalega er skráður, sem sjá má
á kvittun fyrir kauðum á vörunni.
– 45 –