• Skoðaðu staðbundin lög sem vísa til notkunar á handhjólum sem
tengja má við hjólastóla, þar sem þau geta verið mismunandi eftir
því hvar þú býrð.
• Farðu alltaf yfir öryggisþætti HANDBIKE BATEC HIBRID fyrir hverja
notkun. Þá skal fara yfir:
– Að fastir eða færanlegir öxlar á afturhjólunum á hjólastólnum
þínum séu í lagi.
– Franska rennilása á sæti og baki hjólastólsins.
– Loftþrýsting í dekkjum hjólastólsins, því ef hann er lítill er aukin hæ-
tta á veltum og að dekkin eyðist (loftþrýstingur sem mælt er með
fyrir hjólastóla: sjá merkingu á hlið dekkjanna).
– Loftþrýsting í dekkjum HANDBIKE BATEC HIBRID (loftþrýstingur
sem mælt er með: mismunandi eftir gerðum).
– Að undirvagn HANDBIKE BATEC HIBRID sé í lagi.
– Að allir hlutar, sérstaklega allar skrúfur, séu vel fastir.
– Að bremsurnar virki rétt.
– Að öll rafmagnstengi séu í góðu ástandi og vel og vandlega tengd.
– Að rafhlaðan sé tengd.
– Að HANDBIKE BATEC HIBRID tengist og aftengist rétt við hjólas-
tólinn.
VARÚÐ!
Fyrir notkun
• Forðastu að eyðileggja bremsu- og hraðabreytingakapla. Kaplarnir geta
vafist utan um notandann ef sveifararmurinn er ekki notaður rétt.
• Þegar þú undirbýrð flutning skaltu ganga úr skugga um að kaplarnir
séu ekki fastir, klemmdir eða skemmdir.
• Ekki nota HANDBIKE BATEC HIBRID ef kaplarnir eru skemmdir.
– 10 –
2.2. Á MEÐAN Á NOTKUN STENDUR
• HANDBIKE BATEC HIBRID skal einungis notað til að flytja einn eins-
takling í einu.
• Einungis er mælt með notkun HANDBIKE BATEC HIBRID fyrir þá eins-
taklinga sem eru líkamlega og andlega færir um að vera á ferðinni í
bílaumferð.
• Forðast skal óþarfa hættu svo sem mikinn hraða, snöggar beygjur og
halla. Einnig skal forðast að keyra yfir hluti sem geta valdið því að þú
þurfir að bremsa snögglega eða þú getir oltið.
• Öruggasta leiðin til að keyra HANDBIKE BATEC HIBRID er á sléttu og
hindrunarlausu yfirborði. Ef mögulegt er að nota ramp skaltu gera
það. Farðu alltaf sérstaklega varlega þegar þú ferð yfir götu.
• Vertu með endurskinsmerki á HANDBIKE BATEC HIBRID og á hjólas-
tólnum eða á fötunum til að vera sýnilegri bílstjórum. Þegar skyggni
minnkar skaltu alltaf nota ljósin.
• Það er hætta á að renna á blautu yfirborði, í möl eða á óreglulegu
yfirborði. Stilltu hraða og akstur í samræmi við það. Ekki nota HAND-
BIKE BATEC HIBRID í aurbleytu eða hálku.
• Athugaðu hvort þú hefur færturna vel staðsetta á fótstiginu á hjólas-
tólnum og að öryggisbeltið sé rétt fest.
• Þegar þú ert á ferðinni á HANDBIKE BATEC HIBRID, stjórnaðu
hraðanum og lagaðu hann að því yfirborði sem þú keyrir á. Að aka
rólega kemur í veg fyrir óþarfa áhættu. Ekki aka HANDBIKE BATEC
HIBRID hraðar en þú gerðir á hjólastólnum einum og sér.
• Hámarks ráðlagður hraði á gangstéttum og á göngusvæðum er
6 km/klst.
• Þegar þú þarf að beygja, hafðu í huga að þú þarf að minnka hraðan
áður og sýna sérstaka varkárni. Ef þú beygir á hraða sem á ekki við,
getur þú misst stjórnina á HANDBIKE BATEC HIBRID og átt á hættu
að velta eða heyra á. Hallaðu líkamanum inn á við í beygjuna til að
auka stöðugleika og draga úr hættu á veltu.
– 11 –