Descargar Imprimir esta página

3M PELTOR WS ALERT MRX21A1WS7 Guía Rápida página 142

Publicidad

Idiomas disponibles
  • MX

Idiomas disponibles

  • MEXICANO, página 76
3M™ PELTOR™ WS™ ALERT™ XPV heyrnartól
MRX21A1WS7*
*Táknar aðra útgáfu af vörunni
1. INNGANGUR
Til hamingju og þakka þér fyrir að velja þessi heyrnartól sem
samskiptalausnir!
1.1. ÆTLUÐ NOTKUN
Þessum heyrnarhlífum er ætlað að tryggja starfsfólki vernd
gegn hættulegum hljóðstyrk um leið og notandinn getur
átt samskipti með innbyggðri Bluetooth-tækni og heyrt
umhverfishljóð frá umhverfishljóðnemum. Gert er ráð fyrir
því að allir notendur lesi og skilji meðfylgjandi leiðbeiningar
notenda ásamt því að kunna að nota tækið.
3M PSD vörur eru eingöngu ætlaðar til notkunar í
atvinnuskyni. Sumar 3M PELTOR vörur gætu einnig hentað til
ákveðinna verkefna annarra en í atvinnuskyni í Evrópu. Lestu
alltaf og farðu eftir Leiðbeiningum notanda.
2. ÖRYGGI
2.1. MIKILVÆGT
Lestu vinsamlegast, gerðu þér grein fyrir öllum
öryggisupplýsingum í leiðbeiningum þessum og farðu eftir
þeim áður en þú tekur heyrnartólin í notkun. Geymdu
leiðbeiningarnar til þess að geta leitað í þær síðar. Hafðu
samband við tæknideild 3M (samskiptaupplýsingar er að
finna á öftustu síðu).
!
VIÐVÖRUN
Heyrnarhlífarnar draga úr hættu á heilsutjóni vegna hávaða og
annarra háværra hljóða. Séu heyrnarhlífar notaðar rangt eða
notkun þeirra sleppt þann tíma sem dvalist er í hættulegum
hávaða, getur það leitt til heyrnarskerðingar eða -taps. Ræddu
við verkstjóra, kynntu þér leiðbeiningar notenda eða hafðu
samband við Tæknideild 3M til að kynna þér rétta notkun. Ef
þér finnst eins og þú sért með bómull í eyrunum eða heyrir
són eða suð í eða eftir hávaða (byssuskot meðtalin), eða ef þú
hefur einhverja aðra ástæðu til að ætla að þú glímir við
heyrnarvanda, skaltu yfirgefa hávaðasama umhverfið
umsvifalaust og hafa samband við lækni og/eða verkstjóra
þinn.
Sé ekki farið eftir leiðbeiningum þessum, gæti það leitt til
alvarlegs líkamstjóns eða dauða:
a. Þessar heyrnarhlífar gefa kost á flutningi hljómlistar til
afþreyingar. Sé hlustað á tónlist eða önnur hljóðskilaboð,
getur það dregið úr athygli þinni gagnvart umhverfinu og
getunni til þess að heyra viðvörunarmerki á tilteknum
vinnustað. Vertu á verði og hafðu hljóðið eins lágt stillt og
mögulegt er að sætta sig við.
b. Dragðu úr þeirri hættu sem getur fylgt sprengingu með því
að nota ekki ekki eiginöruggan búnað eða fylgihluti í
mögulega sprengifimu umhverfi.
Sé ekki farið eftir leiðbeiningum þessum, gæti það dregið
úr verndargetu heyrnarhlífanna og jafnvel leitt til
heyrnartjóns:
a. 3M mælir eindregið með því að hver og einn notandi felli
allar heyrnarhlífar vandlega að sér. Rannsóknir benda til
þess að stundum sé hljóðeinangrun minni en
hljóðdeyfingargildi á umbúðum gefa til kynna vegna frávika
við að fella hlífarnar að hverjum notanda fyrir sig og færni
viðkomandi og hvatningu til þess. Kynntu þér viðeigandi
reglur og leiðbeiningar á merkimiða um aðlögun suðhlutfalls/
falla til merkis. Séu viðeigandi reglur ekki fyrir hendi er mælt
með því að lækka suðhlutfall/föll til merkis til að geta betur
metið dæmigerða vernd.
b. Gættu þess að réttar heyrnarhlífar séu valdar, þeim komið
fyrir, þær aðfelldar og haldið við. Sé búnaðinum komið fyrir á
ófullnægjandi hátt, dregur það úr getu hans til þess að deyfa
hávaða. Kynntu þér meðfylgjandi upplýsingar um rétta
notkun.
c. Skoðaðu heyrnarhlífarnar fyrir hverja notkun. Séu þær
skemmdar, veldu þér óskaddaðar heyrnarhlífar eða forðastu
hávaðasamt umhverfi.
d. Sé nauðsynlegt að bæta við frekari persónuhlífum (t.d.
öryggisgleraugum, öndunargrímum o.s.frv.), ber að velja
sveigjanlegar og þunnar teygjur eða bönd til þess að þau
hafi sem minnst áhrif á heyrnarhlífapúðana. Fjarlægðu allt
annað (t.d. hár, húfur, skartgripi, heyrnartól, hreinlætishlífar
o.s.frv.) sem gæti dregið úr einangrunargildi
eyrnahlífapúðanna og verndargildi hlífanna.
e. Ekki beygja eða breyta lögun á höfuðspöng eða hálsspöng
og gættu þess að hún sé nógu öflug til þess að halda
heyrnarhlífunum tryggilega á sínum stað.
f. Eyrnahlífar og einkum þó eyrnapúðar geta orðið lélegir með
tímanum og þá þarf að skoða með reglulegu millibili í leit að
t.d. sprungum og hljóðleka. Séu heyrnarhlífapúðarnir notaðir
reglulega, ber að skipta um þá og frauðhringina að minnsta
kosti tvisvar á ári til þess að viðhalda fullnægjandi vernd,
hreinlæti og þægindum.
g. Frálag rafeindarásar í þessum heyrnarhlífum getur farið fram
yfir dagleg hávaðamörk. Hafðu hljóðið eins lágt stillt og
mögulegt er að sætta sig við. Hljóðstyrkur frá hvaða
tengdum ytri hljóðgjafa sem er, svo sem talstöðvum og
símum, getur farið yfir örugg hávaðamörk svo notandinn
verður að takmarka þau á viðeigandi hátt. Hafðu hljóðstyrk
frá ytri hljóðgjöfum alltaf eins lágt stilltan og mögulegt er við
hverjar aðstæður og takmarkaðu þann tíma sem hættulegur
hljóðstyrkur, skilgreindur af vinnuveitanda og viðeigandi
reglugerðum, getur valdið váhrifum. Ef þér finnst eins og þú
heyrir verr, heyrir són eða suð í eða eftir hávaða (byssuskot
þar með talin) eða ef þú hefur einhverja aðra ástæðu til að
ætla að þú glímir við heyrnarvanda, skaltu umsvifalaust fara í
hljóðlátt umhverfi og hafa samband við lækni og/eða
verkstjóra þinn.
h. Sé ekki farið eftir ofangreindum kröfum, skerðir það
verndareiginleika heyrnarhlífanna verulega.
IS
135

Publicidad

loading