Descargar Imprimir esta página

Etac R82 Chilla Manual Del Usuario página 121

Publicidad

Almennt
Þú hefur valið tæki frá R82 – alþjóðlegum söluaðila hjálpartækja og búnaðar fyrir börn og unglinga
með sérþarfir. Til að nýta sem best þá valkosti sem þetta tæki hefur upp á að bjóða skaltu lesa
notendahandbókina fyrir notkun og geyma hana til síðari nota.
Fyrirhuguð notkun
Chilla er stuðningstæki ætlað til að bæta upp
vöntun á færni vegna áverka eða fötlunar.
Chilla er ætlað einstaklingi sem skortir getu til
að halda sitjandi stöðu eða hreyfa sig um án þess
að nota stuðningstæki vegna hreyfihömlunar.
Ábendingar
Markhópur fyrir tækið er byggður á hreyfigetu
en ekki sérstöku heilsufari eða aldri.
Notkun tækisins
Notandi er sá sem situr í tækinu. Umönnunaraðili
er sá sem stýrir tækinu.
Útsetning verður takmörkuð (≤ 24 klst.). Þörf
notenda fyrir stuðningstæki við að sitja getur
verið til skamms tíma (≤ 30 daga) eða langs
tíma (> 30 daga). Tækið verður í snertingu við
heilbrigða húð. Það fer eftir stillingu, fylgihlutum
og umönnunaraðila hvort snerting er við húð
á efri útlimum eða neðri útlimum notanda.
Tækið er ekki í notkun oft á dag á meðan
notandinn liggur fyrir, stendur eða situr í öðru
stuðningstæki eða hefðbundnu tæki.
Frábendingar
Engar frábendingar eru þekktar.
Varúðarráðstafanir
Notandi má aldrei vera eftirlitslaus í tækinu.
Tryggja skal að umönnunaraðili sinni stöðugu
eftirliti.
Sérstaklega skal gæta að eftirfarandi atriðum við
uppsetningu tækisins og notkun fylgihluta þegar
um er að ræða notendur með takmarkanir á:
• starfsemi skynfæra og sársaukaskynjun:
Fylgjast skal sérstaklega með þrýstingi
sem notandi verður fyrir af völdum tækisins
og fylgihluta þess.
• hreyfigetu (t.d: einstaklingar með ósjálfráðar
hreyfingar): Íhuga skal að nota tæki með
stillanlegri bakstoð.
• getu til að halda sitjandi stöðu: Notið tækið
með fylgihlutum (t.d. hliðarstuðningi, vestum,
ólum eða armstuðningi og bakka).
• getu til að halda höfði: Íhuga skal að nota
fylgihluti sem veita sérstakan stuðning
við höfuð.
Notkunarsvið
Chilla er ætlað til notkunar úti og inni, á heimilum
eða stofnunum, ekki á svæðum þar sem bleyta
er til staðar.
etac.com
ÍSLENSKA
EN
Verkfæri sem fylgja með:
• Á EKKI VIÐ
Samræmisyfirlýsing
Varan samræmist kröfum reglugerðar um
lækningatæki (2017/745).
Fjarlægja þarf CE-merkinguna þegar:
• Tækið er endurbyggt
• Tækið er ekki notað í samræmi
við fyrirhugaðan tilgang þess og
samræmisyfirlýsingu
• Notaðir eru varahlutir eða tengi sem ekki
eru frá R82.
Þegar tækið er notað samhliða öðrum tækjum
má slík samsetning ekki vera í því skyni að breyta
fyrirhuguðum tilgangi viðkomandi tækja og ekki
má breyta tækjunum á þann veg að það geti
haft áhrif á samræmi við gildandi kröfur.
Aðilinn/fyrirtækið sem ber ábyrgð á samhliða
notkun tækjanna skal tryggja að gildandi kröfur
séu uppfylltar.
Dæmi um viðeigandi kröfur:
• Öryggi efna (lífsamrýmanleiki, eldfimi), vélrænt
öryggi (stöðugleiki, hætta á að kremjast,
samtengingar), rafmagnsöryggi
Förgun
Þegar endingartími vörunnar er liðinn skal hún
tekin í sundur eftir efnistegundum svo hægt
sé að endurvinna eða farga hlutum hennar
á réttan hátt. Ef þörf krefur skal hafa samband
við næsta söluaðila til að fá nákvæma lýsingu
á hverju efni. Hafið samband við staðaryfirvöld
til að fá upplýsingar um hvaða valkostir eru í boði
fyrir umhverfisvæna endurvinnslu.
Fylgihlutir og varahlutir
Vörurnar frá R82 er hægt að fá með ýmsum
fylgihlutum sem eru í samræmi við þarfir hvers
notanda. Hægt er að panta varahluti. Fylgihluti
má finna á vefsvæði okkar en einnig má fá nánari
upplýsingar hjá næsta söluaðila.
Ábyrgð R82
www.etac.com/support
Upplýsingar og leiðbeiningar
fyrir kaup
Finna má upplýsingar og leiðbeiningar fyrir
kaup á www.etac.com, undir vöruheitinu
í skjalahlutanum.
121

Publicidad

loading