Tilætluð Notkun - 3M DBI-SALA 2200094 Manual De Instrucciones Para El Usuario

Tabla de contenido

Publicidad

Idiomas disponibles
  • MX

Idiomas disponibles

  • MEXICANO, página 60
ÖRYGGISUPPLÝSINGAR
Vinsamlegast lestu, meðtaktu og fylgdu öllum öryggisupplýsingum sem eru í þessum leiðbeiningum áður en þetta sogfestingakerfi
er notað. EF LEIÐBEININGUM ÞESSUM ER EKKI FYLGT EFTIR GETUR ÞAÐ VALDIÐ ALVARLEGUM MEIÐSLUM EÐA DAUÐA.
Leiðbeiningar þessar verður að afhenda notanda þessa búnaðar. Geymdu þessar leiðbeiningar til að styðjast við í framtíðinni.
Tilætluð notkun:
Þetta sogfestingakerfi er ætlað til notkunar sem hluti af fullkomnu verndarkerfi sem verndar manneskjuna gegn falli.
Öll önnur notkun, þ.m.t., en takmarkast ekki við, meðhöndlun efna, notkun í afþreyingar- eða íþróttaskyni eða önnur notkun sem ekki er lýst
í notandaleiðbeiningunum, er ekki samþykkt af 3M og gæti valdið alvarlegum meiðslum eða dauða.
Einungis þjálfaðir notendur á vinnustað skulu nota þetta kerfi.
!
VIÐVÖRUN
Þetta sogfestingakerfi er hluti af fallvarnarkerfi. Ætlast er til að allir notendur séu fullþjálfaðir í öruggri uppsetningu og notkun þeirra eigin
fallvarnarkerfis. Röng notkun þessa kerfis getur valdið alvarlegum meiðslum eða dauða. Til að tryggja rétt val, notkun, uppsetningu,
viðhald og þjónustu skaltu lesa þessar notandaleiðbeiningar og allar ráðleggingar framleiðanda, ræða við yfirmann þinn eða hafa samband við
tækniþjónustu 3M.
Til að draga úr áhættu sem tengist vinnu með sogfestingakerfi sem getur, ef ekki er komið í veg fyrir hana, valdið alvarlegum
meiðslum eða dauða, skaltu gera eftirfarandi:
-
Skoðaðu kerfið fyrir hverja notkun og að minnsta kosti mánaðarlega. Hafðu notandaleiðbeiningarnar til hliðsjónar við skoðunina.
-
Viðurkenndur tæknimaður skal skoða/endurvotta kerfið ef fall á sér stað og minnst árlega þess utan.
-
Ef skoðun leiðir í ljós að kerfishluti er óöruggur eða gallaður skal taka kerfið úr notkun og senda það til viðurkenndrar þjónustumiðstöðvar.
-
Þetta kerfi er með innbyggðar hljóðviðvaranir. Ekki nota kerfið nema viðvaranirnar virki og þú getir heyrt í þeim.
-
Ávallt skal tengja við tilgreindu festipunktana fyrir fallvörn.
-
Aðeins má setja kerfið upp á yfirborði og með aðferðum sem tilgreindar eru í notandaleiðbeiningunum. Uppsetning og notkun fyrir utan
svið þessara leiðbeininga þarf að vera samþykkt af 3M Fall Protection.
-
Það mannvirki sem kerfið er fest við verður að þola þann kyrrstöðuþunga sem tilgreindur er fyrir þetta kerfi í notandaleiðbeiningum.
-
Aldrei skipta um rafhlöður í umhverfi þar sem er sprengihætta.
-
Þegar skipt er um rafhlöður skal aðeins nota rafhlöðurnar sem tilgreindar eru í notandaleiðbeiningunum.
-
Ekki gata eða breyta hylkinu eða þrýstiloftsslöngunni á nokkurn hátt. Það gæti valdið hættulegum og stjórnlausum leka á gasi undir
þrýstingi.
-
Tryggja skal að öll fallvarnarkerfi/undirkerfi sem eru samsett úr íhlutum mismunandi framleiðenda séu samhæfð og mæti kröfum
viðeigandi staðla, þ.m.t. staðlinum ANSI Z359 eða öðrum viðeigandi fallvarnarkóðum, stöðlum eða kröfum. Alltaf skal ráðfæra sig við
hæfan eða vottaðan aðila, áður en þessi kerfi eru notuð.
Til að minnka áhættuna sem fylgir því að starfa hátt uppi, sem gæti, ef ekki er komið í veg fyrir það, valdið alvarlegum
meiðslum eða dauða:
-
Tryggðu að heilsa þín og líkamlegt ástand geri þér örugglega kleift að þola allt það álag sem fylgir því að starfa hátt uppi. Ráðfærðu þig
við lækni ef þú ert með einhverjar spurningar varðandi hæfni þína til að nota þennan búnað.
-
Aldrei skal fara yfir leyfilega getu fallvarnarbúnaðarins.
-
Aldrei skal fara umfram hámarkslengd frjáls falls sem fallvarnarbúnaðurinn leyfir.
-
Ekki nota neinn fallvarnarbúnað sem bilar við prófun eða við eftirlit, eða ef þú hefur áhyggjur af notkun búnaðarins eða telur að hann
henti ekki í það verk sem er fyrir höndum. Hafðu samband við tæknilega þjónustu 3M ef þú ert með einhverjar spurningar.
-
Sum undirkerfi og samsetningar íhluta geta truflað notkun þessa búnaðar. Einungis skal nota tengingar sem eru samhæfðar við þennan
búnað. Ráðfærðu þig við 3M fyrir notkun þessa búnaðar ef hann er notaður með íhlutum eða undirkerfum öðrum en þeim sem er lýst
í notandaleiðbeiningunum.
-
Nota skal auka varúðarráðstafanir þegar verið er að vinna nálægt tækjabúnaði sem er á hreyfingu (dæmi: á olíuborpöllum), nálægt
rafmagnshættu, við hátt hitastig, við efnahættu, þar sem sprengihætta er eða hættulegt gas, skarpar brúnir, eða undir hlutum sem
gætu fallið á þig eða fallið á verndarbúnaðinn sjálfan.
-
Notaðu Arc Flash- eða Hot Works-búnað þegar þú vinnur í mjög heitu umhverfi.
-
Forðastu yfirborðsfleti og hluti sem geta skaðað notanda eða búnaðinn.
-
Tryggðu að það sé viðeigandi pláss til að falla þegar þú vinnur hátt uppi.
-
Aldrei breyta eða umbreyta fallvarnarbúnaðinum. Einungis 3M eða aðilar sem hafa skriflegt umboð frá 3M mega gera við þennan búnað.
-
Áður en fallvarnarbúnaður er notaður skaltu tryggja að neyðaráætlun sé til um hvernig bregðast skuli samstundis við ef fall á sér stað.
-
Ef fall á sér stað skal leita læknishjálpar strax fyrir þann starfsmann sem fallið hefur.
-
Ekki má nota líkamsbelti til að stöðva fall. Einungis skal nota líkamsöryggisbelti.
-
Lágmarka skal sveiflur með því að vinna eins beint fyrir neðan festipunktinn og mögulegt er.
-
Ef þjálfun fer fram með þessum búnaði verður að nota annað fallvarnarkerfi, þannig að sá sem er í þjálfun sé ekki í hættu við að falla
óvart til jarðar.
-
Alltaf skal nota viðeigandi persónuhlífar þegar verið er að setja upp, nota eða hafa eftirlit með búnaðinum/kerfinu.
123
SIT 5908431 A
IS

Publicidad

Tabla de contenido
loading

Tabla de contenido