A.
Við D-hring sem annað tengi er fest við.
B.
Á þann hátt sem mundi orsaka álag á hliðið. Stóra smellukróka ætti ekki að tengja við D-hringi af hefðbundinni
stærð eða álíka hluti sem mun orsaka álag á hliðið ef krókurinn eða D-hringurinn snýst, nema smellukrókurinn sé
búinn 16 kN (3.600 punda) hliði.
C.
Við falska tengingu, þegar stærð og lögun pörunartengja eru ekki samhæf, og án sýnilegrar staðfestingar og
virðast vera að fullu fastir við festipunktinn.
D.
Við hvorn annan.
E.
Beint við belti eða dragreipi eða festingu (nema leiðbeiningar framleiðanda fyrir dragreipi og tengi heimili slíka
tengingu).
F.
Við hlut sem er að lögun eða stærð þannig að smellukrókurinn eða karabínan lokast ekki og læsist, eða getur
rúllað af.
G.
Á þann hátt sem kemur í veg fyrir að tengið samstillist rétt undir álagi.
3.0 UPPSETNING OG STILLING
3.1
SKIPULAGNING: Skipuleggið fallvarnarkerfið áður en vinna hefst. Íhugið alla þætti sem gætu haft áhrif á öryggi,
bæði fyrir fall, á meðan að fall á sér stað og eftir fall. Takið tillit til allra krafa og takmarkana sem teknar eru fram í
hluta 1.
3.2
FESTINGAR: Veljið festistað þar sem hættan á fríu falli og sveiflufalli er sem minnst (sjá hluta 1). Veljið traustan
festistað sem þolir það stöðuálag sem tekið er fram í hluta 1.
3.3
FESTING VIÐ LÍKAMA: Fallvarnartaug/staðsetningartaug skal nota með fallvarnarbelti eða öryggisbelti. Ef um
fallvörn er að ræða skal festa dragreipið við viðeigandi festibúnað (D-hring) á fallvarnarbeltinu eða öryggisbeltinu.
Leitið í leiðbeiningarnar sem fylgja með fallvarnarbeltinu eða öryggisbeltinu annars fallvarnarbúnaðar og fylgið
ráðleggingum um festingar eftir.
3.4
TENGDU VIÐ DRAGREIPI FYRIR STAÐSETNINGU VIÐ VINNU: Við tengingu skaltu tryggja að losun geti ekki
átt sér stað. (Sjá kafla 2.5 „Tengi") Tengingar losna þegar núningur á milli króksins og tengisins veldur því að
krókfestingin opnast óvart og losnar.
SKREF 1:
Tengdu stuðningstengi reipis (Rope Support Connector) (sjá mynd 1) við vinstri eða hægri hlið D-hrings
sem staðsett er á líkamsbelti stjórnanda eða líkamsöryggisbelti.
SKREF 2:
Settu dragreipið í kringum tryggilega festingu sem ræður við álag sem nemur 12 kN (2 698 lb) eða meira.
Staðfestu að dragreipið sé fast þannig að það geti ekki runnið niður eða framhjá festipunktinum.
SKREF 3:
Tengdu tengi aðalhluta dragreipis (sjá mynd 1) við hina hlið D-hringsins. Við tengingu verður smellukrókur
eða hlið karabínu að snúa út og í burtu frá notandanum.
SKREF 4:
Til að stytta reipið skaltu toga endann í áttina að festipunktinum. (Mynd 6)
SKREF 5:
Leyfðu reipinu að fara í gegnum stillihnappinn þegar þú hallar þér aftur. Slepptu stillihnappinum þegar
hann er í ákjósanlegri stöðu. (Mynd 7)
SKREF 6:
Staðfestu trygga festingu, viðeigandi tengi og reipisstillingu:
• Fullnægjandi festistyrk.
• Smellukrókur og karabína rétt tengd við líkamsöryggisbelti eða líkamsbelti.
• Dragreipi getur ekki runnið niður eða framhjá festipunkti.
• Dragreipi er með rétta strekkingu.
;
Ekki nota smellukrók eða karabínu til að binda aftur reipið. Bæði tengi verða að vera tengd við viðeigandi hlið D-hringja.
Aldei skal nota stillanlegt dragreipi fyrir staðsetningu við vinnu með aðeins eitt tengi fest við líkamsöryggisbeltið.
4.0 NOTKUN
;
Byrjendur eða aðilar sem nota dragreipi sjaldan ættu að fara yfir „Öryggisupplýsingar" í byrjun þessarar
handbókar áður en þeir nota dragreipið.
4.1
SKOÐUN AF HÁLFU STARFSMANNS: Fyrir hverja notkun skal skoða dragreipið samkvæmt gátlistanum í Eftirlits-
og viðhaldsskrá (tafla 2). Ef skoðun leiðir í ljós óörugg skilyrði eða gefur til kynna að dragreipið hafi orðið fyrir
skemmdum eða álags vegna falls verður að taka dragreipið úr notkun og farga því.
4.2
NOTKUN: Festið ávallt þann enda dragreipisins sem styður við líkamann við fallvarnarbelti eða öryggisbelti fyrst
og svo legginn við hentuga festingu. Látið slaka dragreipisins nálægt fallhættu vera í lágmarki með því að vinna
eins nálægt festingunni og hægt er. Upplýsingar um stoð við líkamann og festingu festibúnaðar má finna í kafla 3.
Athugaðu reglulega festingar og / eða stillingarþætti meðan á notkun stendur.
4.3
EFTIR FALL: Öll dragreipi sem hafa orðið fyrir álagi vegna varnar við falli eða hafa ummerki um skemmdir sem
samsvara varni gegn falli samkvæmt því sem tekið er fram í Uppsetningar- og viðhaldsskrá (tafla 2) verður að taka úr
notkun samstundis og farga.
5.0 SKOÐUN
5.1
SKOÐUNARTÍÐNI: Dragreipið með skal skoða með því millibili sem tekið er fram í hlta 2. Skoðunaraðferðum er lýst í
„Eftirlits- og viðhaldsskrá" (tafla 2).
;
Erfiðar vinnuaðstæður (óblítt umhverfi, langvarandi notkun, o.s.frv.) geta haft í för með sér tíðari skoðun.
85