Dyson AB09 Manual Del Propietário página 39

Ocultar thumbs Ver también para AB09:
Tabla de contenido

Publicidad

IS
UMHIRÐA DYSON AIRBLADE TAP HANDÞURRKU MEÐ KRANA
VARÚÐ:
Ekk skal nota þessa vöru í vaski með tappa. Áður en vatnsflæðið er virkjað skal tryggt að engin fyrirstaða sé í
niðurfallinu og að afrennsli vatns sé hindrunarlaust.
NOTKUN
1. Settu hendurnar undir miðjan kranann og þá tekur vatn að streyma sjálfkrafa, eins lengi og höndunum er haldið þar.
2. Settu hendurnar hvora sínum megin við miðkranann til að kveikja á handþurrkunni og þá myndast lofttungur sem
skafa vatnið af höndunum.
3. Færðu hendurnar hægt fram og aftur í gegnum loftstrauminn og snúðu þeim til að þurrka bæði lófa og handarbak.
LEIÐBEININgAR UM BILANAgREININgU
Vandamál
Dyson-handþurrkan fer ekki í gang.
Handþurrkan kveikir og slekkur óreglulega á sér.
Handþurrkan slekkur stundum á sér þegar hún er í notkun en fer svo
aftur í gang skömmu síðar.
Handþurrkan er lengur að þurrka en áður.
Loftstraumurinn úr handþurrkunni er heitari en vant er.
Loft streymir stöðugt úr handþurrkunni.
Ekkert loft kemur úr handþurrkunni.
TAPPI:
Vandamál
Vatn rennur stöðugt úr krananum.
Ekkert vatn kemur úr krananum.
Vatnið sem kemur úr krananum er of heitt eða of kalt.
Ef frekari spurningar vakna skal hafa samband við þjónustuver Dyson.
HREINSUN
Handþurrkuna skal þrífa daglega.
Fylgið þessum tveimur einföldu skrefum til að tryggja hámarksafköst og hreinleika tækisins. Ef röng hreinsiaðferð eða
-efni eru notuð getur það ógilt ábyrgðina.
1. Komið hreinsunarhettunni fyrir og þurrkið allt yfirborð með mjúkum klút og óslípandi hreinsiefni. Gætið sérstaklega
að þéttum tækisins.
2. Hreinsið loftinntökin neðst á mótorhylkinu REGLULEGA.
Lausn
Athugaðu hvort öryggi/útsláttarrofi virkar og gættu þess að rafstraumur
og vatnsinntak séu tengd.
Gættu þess að hreinsunarhettan sé ekki á og að skynjararnir séu hreinir
og lausir við fyrirstöðu.
Kveiktu og slökktu á tækinu.
Gætið þess að skynjararnir séu hreinir.
Gætið þess að skynjarasnúran frá krananum sé tryggilega tengd.
Gættu þess að loftinntök séu hrein og laus við ryk. Ef ryk er í loftinntökum
skal fjarlægja það.
Gættu þess að engar hindranir séu fyrir loftinntökum og að fríbil þeirra sé
nægilegt (sjá leiðbeiningar um uppsetningu).
Athugaðu hvort ryk er á loftinntökum og fjarlægðu það. Skoðaðu síuna
og skiptu um síu ef þörf krefur.
Gætið þess að slangan sé tryggilega fest við neðri hluta kranans og að
hvergi finnist leki.
Gætið þess að skynjararnir séu hreinir og lausir við hindranir
Athugið hvort öryggi/útsláttarrofi virkar og gætið þess að rafstraumur sé
tengdur.
Gætið þess að loftslangan sé tryggilega fest við neðri hluta kranans og
að hvergi finnist leki.
Gætið þess að skynjarasnúran frá krananum sé tryggilega tengd.
Lausn
Gætið þess að skynjararnir séu hreinir og lausir við hindranir
Gætið þess að kveikt sé á raf- og vatnsstraumi og að einangrunarlokinn
sé opinn.
Gætið þess að sigtið í krananum sé laust við óhreinindi; fjarlægið það og
hreinsið eða skiptið um það ef þörf krefur.
Hafðu samband við þjónustuver Dyson.
ALMENNAR RÁÐLEggINgAR
Öll hreinsiefni skal nota nákvæmlega eins og framleiðandi þeirra segir til um í leiðbeiningum (þ. á m. varðandi rétta
blöndun og þynningu).
Öll efni sem á að nota þarf að prófa fyrst á lítt áberandi stað til að staðfesta hentugleika þeirra.
Auk hreinsiefnanna skal gæta þess að engir skaðlegir vökvar komist í snertingu við tækið, einkum olíur og efni sem
innihalda alkóhól.
Tryggja skal að engin fyrirstaða sé í niðurfallinu og að afrennsli vatns sé hindrunarlaust.
LEIÐBEININgAR UM NOTKUN EFNA
Hægt er að nota ýmis iðnaðarhreinsiefni. Eftirfarandi efni eru skaðleg fyrir tækið, og þau ætti ekki að nota. Ef þau eru
notuð fellur ábyrgðin úr gildi.
Notið ekki:
Blöndu alkóhóls og sýru
Alkóhól
Leysiefni/efni sem innihalda olíu
Fjórgilt köfnunarefni
Alkalíbleikiefnablöndur
Freyðandi efni
Bleiki- eða slípiefni
Þrýstiþvoið ekki
LEIÐBEININgAR UM NOTKUN VATNS
Þessi handþurrka er með IP35-vottun.
Ef þrýstidæla er notuð getur vatn komist inn undir ytra byrðið. Ábyrgðin nær ekki yfir vatnsskemmdir sem upp koma
vegna rangra aðferða við þrif.
LEIÐBEININgAR ÞEgAR SKIPT ER UM SEgULLIÐA
Nauðsynlegt getur verið að skipta um segulliða handþurrkunnar. Ef grunur leikur á um að þess þurfi skal hafa samband
við þjónustuver Dyson.
Þegar skipt er um segulliða verður að taka handþurrkuna úr sambandi við rafmagn og vatnsstreymi. Sé það ekki gert
getur það valdið alvarlegum meiðslum og/eða eignaskemmdum.
VIÐHALD SÍU
Skoðið loftinntökin reglulega til að tryggja að þau séu laus við ryk og óhreinindi. Það ætti að nægja að þurrka
inntaksopin með mjúkum klút til að fjarlægja ryk og óhreinindi.
Ef loftinntökin stíflast gæti verið þörf á frekari þrifum eða síuskiptum.
Ef þurrkan er notuð á stöðum þar sem álag er mikið getur reynst hentugt að nota síuskiptisett frá Dyson þegar skipta
þarf um HEPA-síu tækisins á staðnum. Fáið frekari upplýsingar hjá þjónustuveri Dyson, símanúmerið er að finna á
baksíðu handbókarinnar.
Hægt er að hreinsa eða skipta um síu í Dyson-handþurrkunni með því að fara vandlega eftir leiðbeiningunum sem
fylgja síuskiptisettinu. Ef einhver vafi kemur upp skal leita ráða hjá viðurkenndum rafvirkja eða hafa samband við
þjónustuver Dyson.
UPPLÝSINgAR UM FÖRgUN
Vörur frá Dyson eru gerðar úr hágæða endurvinnanlegum efnum. Vinsamlegast fargið vörunni á réttan hátt og
endurnýtið hana eins og kostur er.
SKRÁÐU ÞIg SEM EIgANDA DYSON AIRBLADE TAP HANDÞURRKU MEÐ KRANA
Skráðu tækið þitt á www.dysonairblade.com til að flýta fyrir þjónustu og gera hana skilvirkari
Með þessum hætti er ábyrgð þín skráð og eignarhald þitt á Dyson-tækinu staðfest ef tryggingatjón kemur upp. Það gerir
okkur einnig kleift að hafa samband við þig ef þörf krefur.
Til þess þarf að nota raðnúmerið, sem finna má neðst hægra megin á undirstöðuplötunni, á skráningarblaði í kassanum
og á stórum upplýsingamiða sem er á krananum þegar hann er tekinn úr umbúðunum.
Vinsamlega sjáið til þess að farið sé eftir öllum fyrirmælum og leiðbeiningum í þessari handbók,
uppsetningarleiðbeiningum og leiðbeiningum um þrif. Sé það ekki gert getur ábyrgðin fallið úr gildi.
39

Publicidad

Tabla de contenido
loading

Este manual también es adecuado para:

Ab10Ab11Ab 08Ab 12

Tabla de contenido