Descargar Imprimir esta página

Kröfur Til Uppsetningarsvæðis; Skilyrði Fyrir Tengingu Við Rafmagn; Gildi Fyrir Lekastraumsrofa; Gildi Sjálfvars - Webasto Next Manual De Instrucciones

Ocultar thumbs Ver también para Next:

Publicidad

Idiomas disponibles
  • MX

Idiomas disponibles

  • MEXICANO, página 272
ÁBENDING
Öryggishönnun Webasto Next byggist á því að
jarðtenging sé til staðar og skal rafvirki ganga úr
skugga um það þegar uppsetning fer fram.
Webasto Charger Setup-appið (fyrir uppsetningu)
Til þess að sækja appið:
u
skal skanna eftirfarandi QR-kóða, eða
fara á:
u
https://apps.apple.com/ (Apple App Store) eða
https://play.google.com/ (Google Play Store).
Webasto ChargeConnect-appið (fyrir notkun)
Til þess að sækja appið:
u
skal skanna eftirfarandi QR-kóða, eða
u
fara á:
https://apps.apple.com/ (Apple App Store) eða
https://play.google.com/ (Google Play Store).
4.1
Kröfur til uppsetningarsvæðis
Við val á uppsetningarstað fyrir Webasto Next verður að
gæta að eftirfarandi atriðum:
– Við uppsetningu verður neðri brún meðfylgjandi
skapalóns að vera í að minnsta kosti 90 cm fjarlægð
frá gólfi. Sjá Mynd 9.
– Ef fleiri en ein hleðslustöð er sett upp hlið við hlið
verður bilið á milli stöðvanna að vera að minnsta kosti
200 mm.
– Uppsetningarflöturinn verður að vera sterkbyggður og
stöðugur.
5111233B_ISI_Next
– Uppsetningarflöturinn verður að vera alveg sléttur
(ekki má muna meiru en 1 mm milli
uppsetningarpunkta).
– Engin eldfim efni mega vera á uppsetningarfletinum.
– Að bíllinn sé í eins lítilli fjarlægð frá hleðslustöðinni og
kostur er.
– Að ekki sé hætta á að ekið sé yfir hleðslusnúruna.
– Að hægt sé að tengja innviðin við rafmagn.
– Að tækið hindri ekki aðgang að göngu- og
flóttaleiðum.
– Tækið þarf að vera sett upp á stað þar sem sólin skín
ekki beint á það, til að tryggja sem besta og
snurðulausa virkni.
– Hvernig bílnum er yfirleitt lagt með tilliti til þess hvar
hleðslutengið er á bílnum.
– Að farið sé að gildandi byggingarreglugerðum og
reglum um brunavarnir.
ÁBENDING
Bilið milli neðri brúnar hleðslustöðvarinnar og gólfsins
verður að vera að minnsta kosti 0,9 m.
4.2
Skilyrði fyrir tengingu við rafmagn
Verksmiðjustilling fyrir hámarkshleðslustraum kemur fram
á upplýsingaplötu hleðslustöðvarinnar. Með DIP-rofum er
hægt að breyta hámarkshleðslustraumnum til samræmis
við gildi sjálfvarsins í rafmagnstöflunni.
ÁBENDING
Straumgildi valins öryggisbúnaðar má alls ekki vera
minna en straumgildið sem kemur fram á
upplýsingaplötu hleðslustöðvarinnar eða stillt er á
með DIP-rofanum.
Sjá Kafli 4.7, "Stilling DIP-rofa" á bls. 155.
Rafvirki skal kanna skilyrði fyrir uppsetningu
hleðslustöðvarinnar áður en hafist er handa við að tengja
búnaðinn við rafmagn.
Fylgja skal reglum yfirvalda og rafveitu á hverjum stað,
m.a. um tilkynningaskyldu vegna uppsetningar á
hleðslustöð.
ÁBENDING
Í sumum löndum er einfasa hleðsla takmörkuð við
tiltekinn straumstyrk. Gætið að skilyrðum fyrir
tengingu á hverjum stað.
Eftirtalinn öryggisbúnaður verður að virka þannig að
hleðslustöðin sé aftengd frá veitukerfi þegar lekastraumur
greinist. Við val á öryggisbúnaði skal fara eftir gildandi
uppsetningarreglum og stöðlum á hverjum stað.
Verksmiðjustilling fyrir hámarkshleðslustraum kemur fram
á upplýsingaplötu hleðslustöðvarinnar. Með DIP-rofum er
hægt að breyta hámarkshleðslustraumnum til samræmis
við gildi sjálfvarsins í rafmagnstöflunni.

Gildi fyrir lekastraumsrofa

4.2.1
Ávallt skal fylgja gildandi reglum um uppsetningu í hverju
landi. Nema gildandi reglur kveði á um annað verður hver
hleðslustöð að vera varin með viðeigandi
lekastraumsvörn (RCD af gerð A) með útleysingarstraumi
≤30 mA.
4.2.2
Gildi sjálfvars
Sjálfvarið (MCB) verður að samræmast EN 60898. Stýfð
orka (I²t) má ekki vera yfir 80 000 A²s.
Einnig má nota samsetningu lekastraumsrofa og sjálfvars
(RCBO) samkvæmt EN 61009-1. Ofangreindar
kennistærðir gilda einnig fyrir þessa samsetningu
öryggisrofa.
Rofbúnaður
4.2.3
Ekki er rofbúnaður í sjálfri hleðslustöðinni.
Öryggisbúnaðurinn í rafmagnstöflunni er því einnig
notaður til að rjúfa strauminn til hleðslustöðvarinnar.
4.3

Uppsetning

Sjá einnig Kafli 5, "Uppsetning" á bls. 156.
Meðfylgjandi uppsetningarbúnaður er ætlaður til að setja
hleðslustöðina upp á múrvegg eða steyptum vegg. Fyrir
uppsetningu á standi fylgir uppsetningarbúnaður með
standinum.
1. Gætið að réttri uppsetningarstöðu á
uppsetningarstað. Sjá Mynd 9
2. Losið borskapalónið úr umbúðunum með rifgötunum.
IS
153

Publicidad

loading