PARKING (biðstaða) er fyrir biðstöðu. Biðstaðan heldur logsuðuhjálminum
í uppréttri stöðu án þess að þörf sé á miklum núningi. Snúið hnappinum
réttsælis þar til æskilegri festingu er náð, sjá mynd 14b. Athugið! Ef þessi
hnappur er hertur um of verður ekki hægt að losa hjálminn úr biðstöðu og
ef hann er ekki hertur nóg mun hjálmurinn ekki læsast í biðstöðu. Ef óskað
er eftir núningi á báðum hliðum í staðinn er hægt að slökkva á biðstöðunni
með því að færa málmskinnuna, sjá mynd 14c.
ANDLITSÞÉTTI (eingöngu G5-03 Pro Air)
Það er mikilvægt að andlitsþéttið sé rétt fest í logsuðuhjálminn, sjá mynd
11a-11b. Stillið andlitsþéttið svo það henti andlitslaginu. Það verður að
vera þétt upp við andlitið til að veita rétta vörn, sjá mynd 11c. Lyftið og
lækkið logsuðuhjálminn með því að draga í ólarnar tvær sem eru á
andlitsþéttinu. Ólarnar eru hannaðar til að aðstoða við að lyfta
andlitsþéttinu yfir gleraugu, sjá mynd 11d. Athugið hvort andlitsþéttið falli
rétt að andlitinu allan hringinn.
LOFTSTÝRING (eingöngu G5-03 Pro Air)
Hægt er að stilla dreifingu lofts inni í logsuðuhjálminum eftir því hvað ykkur
þykir best. Loftstýringarstöngin vinstramegin, sjá mynd 12a, stillir loftflæði,
svo það komi að ofan (yfir ennið), að neðan (yfir kjálkasvæðið) eða bæði.
Með loftstýringunni hægra megin er hægt að stilla stefnu lofts sem kemur
að ofan, svo það streymi að andlitinu eða í átt að hjálmgrímunni, sjá mynd
12b. Þegar allt loftið kemur að neðan verður loftstýringarstöngin hægra
megin óvirk. Fjarlægð logsuðuhjálmsins frá andlitinu hefur einnig áhrif á
hversu þægilegt loftflæðið er, sjá mynd 3.
LEIÐBEININGAR UM HREINSUN
Hreinsið logsuðuhjálminn með mildu hreinsiefni og vatni.
^ Notið ekki leysingarefni eða alkóhól til að þrífa eða sótthreinsa vöruna
til að forðast skemmdir á henni.
VIÐHALD
• logsuðusía, myndir 7a-7f
• spöng mynd 8
• svitaband mynd 9
• Festing þegar höfuðhlíf er notuð mynd 10a (G5-03 Pro)
• andlitsþétti myndir 11a-11c (eingöngu G5-03 Pro Air)
• hálshlíf, myndir 13a-13c
• ennispúði á spöng mynd 5b
^ Slitnum hlutum vörunnar á að farga samkvæmt staðbundnum
reglugerðum.
GEYMSLA OG FLUTNINGUR
Ef varan er geymd við uppgefin geymsluskilyrði er áætlaður geymslutími
hennar fimm ár frá framleiðsludegi. Upprunalegar umbúðir henta til
flutnings og geymslu á vörunni.
TÆKNILEGRI EIGINLEIKAR
Þyngd logsuðuhjálms (án spangar og logsuðusíu):
G5-03 PRO:
G5-03 Pro Air:
Þyngd spangar:
Notkunarskilyr i:
-5
sem þétting á sér ekki stað.
Gey sluskilyr i:
-20
sem þétting á sér ekki stað.
Skammtíma hitaskilyrði, ekki í notkun
<1 mánuð: -30 °C til +60 °C, rakastig
stað.
Áætlaður endingartími:
5 ár en fer eftir notkunarskilyrðum
Höfuðstærðir:
50-64 cm
Efni
Hjálmur:
PPA
Silfruð umgjörð að framan:
PPA
Spöng:
PA, PP, TPE, PE
280 g
530 g
145 g
til +55 , rakastig 90 , ar
til +55 , rakastig 90 , ar
90
ar se
tting s r ekki
31