2. Hreinsið loftinntakið neðst reglulega.
3. Hreinsið gólfið undir vélinni og í kringum hana. Þetta kann að þurfa að gera oftar á stöðum þar sem umgangur er mikill.
MÆLT ER MEÐ AÐ NOTA
Alkóhól
Fjórgild köfnunarefni
Klóríðlausnir
Milt þvotta- og hreinsiefni
NOTIÐ EKKI
Leysiefni/blöndur með olíugrunni
Freyðandi efni
Slípiefni
MIKILVÆGAR UPPLÝSINGAR
Þrýstiþvoið ekki vélina.
Öll hreinsiefni verður að nota nákvæmlega eins og segir til um í leiðbeiningum framleiðanda þeirra (þ. á m. um rétta
blöndun).
Þegar hreinsun er lokið skal fjarlægja efnaleifar.
ALMENNAR RÁÐLEGGINGAR
Inniheldur sýkladrepandi tækni byggða á silfurjónum til að vernda yfirborð og getur unnið gegn niðurbroti vegna
vaxtar baktería.
Ef hreinsiefni er látið standa of lengi á vélinni myndast þunnt lag utan á henni. Þetta getur dregið úr skilvirkni örverueyðandi
yfirborðs vélarinnar.
Öll íðefni sem á að nota ætti að prófa fyrst á lítt áberandi stað til að staðfesta hentugleika þeirra. Auk hreinsiefnanna skal
einnig gæta þess að engir skaðlegir vökvar komist í snertingu við vöruna, sérstaklega olíur og efni sem innihalda alkóhól.
LEIÐBEININGAR UM NOTKUN VATNS
Þessi handþurrkari er með IP24-vottun.
Má aðeins handþvo. Ekki má þrýstiþvo tækið. Við háþrýstiþvott gæti vatn komist inn í kassann, en við það skapast hætta á
raflosti sem myndi ógilda ábyrgðina.
VIÐHALD SÍU
Skoðið loftinntakið reglulega til að tryggja að það sé laust við ryk og óhreinindi. Það ætti að nægja að þurrka inntakið með
mjúkum klúti til að fjarlægja ryk og óhreinindi.
Ef loftinntakið stíflast gæti verið þörf á frekari þrifum eða síuskiptum.
Ef þurrkan er notuð á stöðum þar sem álag er mikið getur reynst hentugt að nota síuskiptisett frá Dyson þegar skipta þarf um
HEPA-síu tækisins á staðnum. Frekari upplýsingar má fá í þjónustuveri Dyson.
Hægt er að hreinsa eða skipta um síu í handþurrkunni með því að fara vandlega eftir leiðbeiningunum sem
fylgja síuskiptisettinu. Ef einhver vafi kemur upp skal leita ráða hjá viðurkenndum rafvirkja eða hafa samband við
þjónustuver Dyson.
VIÐHALDSÞJÓNUSTA
Þarfnist handþurrkan viðhalds skal hafa samband við þjónustuver Dyson. Skoðið einnig vefsvæðið www.dyson.com/airblade
UPPLÝSINGAR UM FÖRGUN
• Vörur frá Dyson eru gerðar úr hágæða endurvinnanlegum efnum. Endurvinnið eins og kostur er.
• Þessi merking gefur til kynna að ekki megi farga þessari vöru með heimilissorpi innan ESB. Til að koma í veg fyrir skaðleg
áhrif á umhverfið eða heilsu fólks vegna eftirlitslausrar förgunar úrgangs skal endurvinna vöruna til að vinna að sjálfbærri
endurnýtingu efna. Þegar notuðu tæki er skilað skal notast við skila- og söfnunarkerfi eða hafa samband við söluaðila
vörunnar. Viðkomandi aðilar geta komið þessari vöru í umhverfisvæna endurvinnslu.
ÞJÓNUSTA VIÐ VIÐSKIPTAVINI DYSON
SKRÁÐU ÞIG SEM EIGANDA DYSON-HANDÞURRKU
Skráðu vélina þína á www.dyson.com/airblade til að fá hraðari og skilvirkari þjónustu. Með þessum hætti er ábyrgð þín
skráð og eignarhald þitt á Dyson-vél staðfest ef tryggingatjón kemur upp. Þetta gerir okkur einnig kleift að hafa samband við
þig ef þörf krefur.
Þú þarft að nota raðnúmerið, sem er að finna á merkiplötu inni í aðalhluta vélarinnar og á upplýsingamiðanum framan
á vélinni.
Gættu þess að fara að öllum fyrirmælum í þessum uppsetningarleiðbeiningum. Sé það ekki gert getur ábyrgðin fallið
úr gildi.
ÁBYRGÐIN
ÁkvæðI og skilmálar 5 ára ábyrgðar Dyson
• Ef tækið hefur verið skráð á netinu tekur ábyrgðin gildi á kaupdegi. Geymið innkaupakvittunina. Ef innkaupakvittun er ekki
fyrir hendi tekur ábyrgðin gildi 90 dögum eftir framleiðsludag skv. skrám Dyson.
• Ef tækið er selt innan Evrópusambandsins heldur ábyrgðin aðeins gildi sínu (i) ef tækið er sett upp og notað í því landi þar
sem það var selt eða (ii) ef tækið er sett upp og notað í Austurríki, Belgíu, Frakklandi, Þýskalandi, Írlandi, Ítalíu, Hollandi,
Spáni eða Bretlandi, og sama gerð tækisins er seld með sömu málspennu í viðkomandi landi. Ef þetta tæki er selt utan
Evrópusambandsins verður það að vera sett upp og notað í því landi þar sem það var selt til að ábyrgðin haldi gildi sínu.
UMFANG ÁBYRGÐAR
Fimm ára ábyrgð á varahlutum
• Allir varahlutir Dyson handþurrkunnar eru í ábyrgð gegn upprunalegum göllum, efni og vinnu, séu þeir notaðir í samræmi við
eigandahandbókina og uppsetningarleiðbeiningarnar í fimm ár frá upphafsdegi ábyrgðarinnar.
Eins árs ábyrgð á vinnu
• Dyson gerir endurgjaldslaust við vöruna í eitt ár frá upphafsdegi ábyrgðarinnar. Eftir það gilda venjuleg gjöld vegna vinnu.
• Frekari upplýsingar má fá í þjónustuveri Dyson.
• Allir hlutir sem er skilað eða skipt út af Dyson verða eign Dyson.
• Viðgerð eða skipti á einingunni undir ábyrgð framlengir ekki ábyrgðartímabilið.
• Ábyrgðin felur í sér viðbótarréttindi sem hafa ekki áhrif á nein lögvarin réttindi sem þú gætir átt sem neytandi.
HVAÐ ÁBYRGÐIN NÆR EKKI YFIR
Dyson ábyrgist ekki viðgerðir eða skipti á vöru þar sem bilunin er vegna:
• Skemmda vegna óhappa, bilana sem stafa af gáleysi í notkun eða umhirðu, misnotkunar án ásetnings eða af ásetningi,
vanrækslu, skemmdarverka, ógætilegrar notkunar eða meðhöndlunar tækisins sem ekki er í samræmi við handbók Dyson.
• Notkunar varahluta sem ekki eru settir saman eða settir upp í samræmi við fyrirmæli frá Dyson.
• Notkunar varahluta og aukabúnaðar sem eru ekki ósviknir varahlutir frá Dyson.
• Rangrar uppsetningar, eða uppsetningar þar sem fyrirmælunum frá Dyson er ekki fylgt nákvæmlega (nema í þeim tilvikum
þar sem Dyson sá um uppsetninguna).
• Viðgerða eða breytinga sem ekki samræmast leiðbeiningum frá Dyson.
• Skemmda af ytri orsökum, t.d. vegna flutninga, veðurs, rafmagnsleysis eða yfirspennu í rafkerfi.
• Eðlilegs slits (t.d. öryggi, o.s.frv.).
• Skemmda vegna þrifa sem ekki eru samkvæmt leiðbeiningum í þessari handbók, t.d. hreinsun með efnum eða vörum sem
eru skaðleg fyrir tækið.
• Skemmda af völdum vatns sem kemst í tækið vegna hreinsunar eða meðferðar sem er bönnuð í þessari handbók.
• Sérhver skemmd í rafkerfi, vegna flóðs eða á byggingu vörunnar, eða sérhvert rekstrar- eða tekjutap sem hlýst af bilun
tækisins. Ef vafi leikur á um hvað fellur undir ábyrgð skal hafa samband við Dyson (upplýsingar á baksíðunni).
UM ÞÍNA PERSÓNUVERND
Við skráningu á Dyson-vörunni
• Þú þarft að gefa okkur upp helstu samskiptaupplýsingar við skráningu á vörunni til að við getum sinnt ábyrgð okkar á henni.
• Þegar þú skráir þig býðst þér að velja hvort þú vilt að við sendum þér upplýsingar síðar. Ef þú velur að fá upplýsingar frá
Dyson munum við senda þér upplýsingar um sértilboð og fréttir sem tengjast nýjustu tækninýjungunum okkar.
• Við seljum upplýsingarnar þínar aldrei til þriðja aðila og notum þær upplýsingar sem þú deilir með okkur aðeins í samræmi
við persónuverndarstefnuna sem hægt er að nálgast á vefsíðu okkar privacy.dyson.com.
57