Almennt; Tilgangur Skjalsins; Notkun Þessa Skjals; Fyrirhuguð Notkun - Webasto Live Instrucciones De Uso

Ocultar thumbs Ver también para Live:
Tabla de contenido

Publicidad

Idiomas disponibles
  • MX

Idiomas disponibles

  • MEXICANO, página 158
1

Almennt

1.1

Tilgangur skjalsins

Þessar notkunar- og uppsetningarleiðbeiningar eru hluti
af vörunni og hafa að geyma upplýsingar fyrir notendur
um örugga notkun sem og upplýsingar fyrir rafvirkja um
örugga uppsetningu Webasto Live-hleðslustöðvarinnar.
1.2
Notkun þessa skjals
Lesið notkunar- og uppsetningarleiðbeiningarnar
u
áður en Webasto Live-hleðslustöðin er sett upp og
tekin í notkun.
Geymið þessar leiðbeiningar þar sem ávallt er hægt
u
að nálgast þær.
u
Afhenda skal síðari eigendum eða notendum
hleðslustöðvarinnar þessar leiðbeiningar.
1.3
Fyrirhuguð notkun
Webasto Live-hleðslustöðin er ætluð til að hlaða raf- og
tvinnbíla samkvæmt IEC 61851-1, hleðsluaðferð 3. Með
þessari hleðsluaðferð tryggir hleðslustöðin eftirfarandi:
– Spennu er ekki hleypt á fyrr en bíllinn hefur verið
tengdur rétt við hleðslustöðina.
– Hámarksstraumstyrkur hefur verið borinn saman.
AC/DC-breytir er í bílnum.
1.4
Notkun tákna og áherslumerkinga
HÆTTA
Viðvörunarorðið gefur til kynna hættu með háu
áhættustigi sem leiðir til banaslysa eða alvarlegra meiðsla
ef ekki eru gerðar viðeigandi ráðstafanir.
VIÐVÖRUN
Viðvörunarorðið gefur til kynna hættu með áhættustigi í
meðallagi sem getur leitt til minniháttar eða óverulegra
meiðsla ef ekki eru gerðar viðeigandi ráðstafanir.
VARÚÐ
Viðvörunarorðið gefur til kynna hættu með lágu
áhættustigi sem getur leitt til minniháttar eða óverulegra
meiðsla ef ekki eru gerðar viðeigandi ráðstafanir.
ÁBENDING
Viðvörunarorðið vekur athygli á tæknilegum eiginleika eða
(ef ekki er brugðist rétt við) hættu á því að varan verði
fyrir skemmdum.
5110326C_OI-II_Webasto Live Multilanguage
Vísar í önnur skjöl sem fylgja ýmist með eða eru fáanleg
hjá Webasto.
Tákn
Skýring
Skilyrði fyrir eftirfarandi leiðbeiningar
Leiðbeiningar
1.5
Ábyrgð vegna galla og skaðsemisábyrgð
Webasto undanskilur sig allri ábyrgð vegna ágalla og
skemmda sem rekja má til þess að ekki var farið eftir
notkunar- og uppsetningarleiðbeiningum. Þessi útilokun
ábyrgðar gildir einkum í eftirfarandi tilvikum:
– Rafvirki sem er ekki á vegum Webasto annast
viðgerðir
– Ekki voru notaðir upprunalegir varahlutir frá
framleiðanda.
– Gerðar voru breytingar á tækinu án samþykkis
Webasto
– Ófaglærður aðili (ekki rafvirki) sá um að setja
búnaðinn upp og taka hann í notkun.
– Tækinu var ekki fargað með réttum hætti eftir að það
var tekið úr notkun
1.6
Hugbúnaðarleyfi
Þessi vara inniheldur opinn hugbúnað (Open Source
Software). Frekari upplýsingar um þetta atriði (fyrirvara,
skriflegt tilboð, leyfisupplýsingar) er að finna á
stjórnborðinu. Með USB-tengingu af gerð B má nálgast
stjórnborðið á eftirfarandi vefslóð:
http://192.168.123.123/groups/system
2
Öryggi
2.1
Almennt
Þróun, framleiðsla, prófanir og gögn hleðslustöðvarinnar
samræmast viðeigandi reglum um öryggi og
umhverfisvernd. Aðeins má nota tækið þegar það er í
fullkomnu lagi.
Ef bilanir koma upp sem stefna öryggi fólks og tækisins í
hættu skal tafarlaust láta rafvirkja gera við þær
samkvæmt gildandi reglum í hverju landi.
ÁBENDING
Merkjagjöfin í bílnum kann að vera frábrugðin því sem
fram kemur í þessari lýsingu. Lesið ávallt og farið eftir því
sem fram kemur í notendahandbók framleiðanda bílsins.
2.2
Almennar öryggisupplýsingar
– Hættulega há spenna í innanverðum búnaðinum.
– Ekki er rofbúnaður í sjálfri hleðslustöðinni.
Öryggisbúnaðurinn í rafmagnstöflunni er einnig
notaður til að rjúfa strauminn til
hleðslustöðvarinnar.
– Athugið hvort sýnilegar skemmdir eru á
hleðslustöðinni áður en hún er notuð. Ekki má
nota hleðslustöðina ef um skemmdir er að ræða.
– Rafvirki verður að sjá um að setja hleðslustöðina
upp, tengja hana við rafmagn og taka hana í
notkun.
– Ekki má taka hlífina yfir uppsetningarsvæðinu af
meðan á notkun stendur.
– Ekki má fjarlægja merkingar, viðvörunartákn eða
upplýsingaplötu af hleðslustöðinni.
– Rafvirki verður að sjá um að skipta um
hleðslusnúruna samkvæmt leiðbeiningum.
– Það er með öllu óheimilt að tengja önnur tæki
við hleðslustöðina.
– Þegar hleðslusnúran er ekki í notkun skal geyma
hana í þar til ætlaðri festingu og festa
hleðsluklóna í hleðslustöðinni. Vefjið
hleðslusnúrunni lauslega utan um hleðslustöðina
þannig að hún snerti ekki gólfið.
– Gætið þess að ekki sé hætta á að ekið sé yfir
hleðslusnúruna og hleðsluklóna, þær klemmist
eða verði fyrir öðru hnjaski.
– Ef hleðslustöðin, hleðslusnúran eða hleðsluklóin
verða fyrir skemmdum skal tafarlaust gera
þjónustuaðila viðvart. Ekki má halda notkun
hleðslustöðvarinnar áfram.
– Verjið hleðslusnúruna og -klóna fyrir ytri
hitagjöfum, vatni, óhreinindum og efnum.
– Í viðhaldsskyni telur hleðslustöðin Webasto Live
hversu oft hleðsluklóin er sett í samband og tekin
úr sambandi og eftir 10.000 skipti birtir hún
ábendingu í vefviðmótinu um að láta skuli
IS
89

Publicidad

Tabla de contenido
loading

Productos relacionados para Webasto Live

Tabla de contenido