3M DBI SALA ROLLGLISS R550 Manual De Instrucciones página 238

Ocultar thumbs Ver también para DBI SALA ROLLGLISS R550:
Tabla de contenido

Publicidad

Idiomas disponibles
  • MX

Idiomas disponibles

  • MEXICANO, página 117
ÖRYGGISUPPLÝSINGAR
IS
Vinsamlegast lestu, meðtaktu og fylgdu öllum öryggisupplýsingum sem eru í þessum leiðbeiningum áður en þetta Lóðrétta líflínukerfi er
notað. EF LEIÐBEININGUM ÞESSUM ER EKKI FYLGT EFTIR, GETUR ÞAÐ VALDIÐ ALVARLEGUM MEÐSLUM, LÍKAMSTJÓNI EÐA DAUÐA.
Leiðbeiningar þessar verður að afhenda notanda þessa búnaðar. Geymdu þessar leiðbeiningar til að styðjast við í framtíðinni.
Ábent notkun búnaðarins:
Þetta Lóðrétta líflínukerfi er ætlað til notkunar sem hluti af fullkomnu verndarkerfi sem verndar manneskjuna gegn falli.
Öll önnur notkun, þ.m.t., en takmarkast ekki við, notkun í afþreyingar- eða íþróttaskyni, notkun við meðhöndlun efna eða önnur notkun sem ekki er lýst
í Leiðbeiningum vöru, er ekki samþykkt af 3M og gæti valdið alvarlegum meiðslum, líkamstjóni eða dauða.
Einungis skal nota þennan búnað af þjálfuðum notendum á vinnustað.
!
VIÐVÖRUN
Þetta gervi/vírareipiskerfi er hluti af verndarkerfi sem verndar manneskjuna gegn falli. Ætlast er til að allir notendur séu fullþjálfaðir í öruggri
uppsetningu og notkun þeirra eigin verndarkerfis sem verndar gegn falli. Röng notkun þessa búnaðar getur valdið alvarlegu líkamstjóni eða
dauða. Til að geta framkvæmt rétt val, notkun, viðhald og þjónustu, skal lesa þessar leiðbeiningar um vöru og allar ráðleggingar framleiðanda, ræddu
við yfirmann þinn eða hafðu samband við tæknilega þjónustu 3M.
Til að lágmarka þá áhættu sem tengist því að starfa með gervi/vírareipiskerfi sem getur, í versta falli, valdið alvarlegu líkamstjóni
eða dauða, skal gera eftirfarandi:
-
Skoða alla íhluti kerfisins fyrir sérhverja notkun a.m.k. árlega og einnig ef slys eða óhapp hefur átt sér stað. Skoða skal íhluti í samræmi við
leiðbeiningar um vöruna.
-
Ef skoðun leiðir í ljós óöruggt eða gallað ástand einhvers íhluta kerfisins, skal fjarlægja gallaða íhlutinn úr kerfinu og farga honum.
-
Öll gervi/vírareipiskerfi sem hafa komið í veg fyrir fall, eða hafa orðið fyrir miklu álagi skulu þegar tekin úr notkun og alla íhluti kerfisins verður
að skoða af hæfum aðila áður en kerfið er tekið aftur í notkun.
-
Ekki tengjast kerfinu á meðan verið er að setja það upp.
-
Aldrei skal leyfa fleirum en einum notanda að tengjast kerfinu í einu. Þetta kerfi er gert fyrir einn stakan notanda.
-
Einungis skal nota samþykkt tengi til að tengja líkamsbeislið við kerfið. Ekki skal nota nein viðbótartengi.
-
Nota skal einungis þá líflínu sem lýst er og samþykkt er í leiðbeiningum um vöruna.
-
Ekki skal nota hnút sem akkeri eða sem burðarpunkt fyrir álag.
-
Fylgja skal öllum leiðbeiningum framleiðanda þegar líflínu er fargað.
-
Ekki skal hindra læsandi virkni Rope Grab tækisins. Einungis skal nota tækið til að tengja eða aftengja það við kerfið.
-
Alltaf skal vera með þrjá snertipunkta við flötinn þegar klifrað er, ef hægt er. Sjá leiðbeiningar vöru til að fá frekari upplýsingar um rétta
klifurtækni.
-
Tryggja skal að öll verndarkerfi/undirkerfi sem vernda gegn falli og sem eru samsett úr íhlutum mismunandi framleiðenda séu samhæfð og
mæti kröfum viðeigandi staðla, þ.m.t. staðlinum ANSI Z359 eða öðrum viðeigandi verndarkóðum gegn falli, stöðlum eða kröfum. Alltaf skal
ráðfæra sig við hæfan eða vottaðan aðila, áður en þessi kerfi eru notuð.
Til að fyrirbyggja áhættuna sem fylgir því að starfa hátt uppi, sem gæti, ef óhapp verður, valdið alvarlegu líkamstjóni eða dauða:
-
Tryggðu heilsufar þitt og að líkami þinn geti þolað allt það álag sem fylgir því að starfa hátt uppi. Ráðfærðu þig við lækni ef þú hefur einhverjar
spurningar varðandi hæfni þína til að nota þennan búnað.
-
Aldrei skal fara yfir leyfanleg mörk verndarbúnaðarins gegn falli.
-
Aldrei fara hærra upp en verndarbúnaðurinn leyfir skv. viðmiðum um hámarkslengd frjáls falls.
-
Ekki nota neinn verndarbúnað gegn falli sem bilar við prófun eða við eftirlit, eða ef þú hefur áhyggjur af notkun búnaðarins, eða telur að hann
henti ef til vill ekki í það verk sem er fyrir höndum. Hafðu samband við tæknilega þjónustu 3M ef þú ert með einhverjar spurningar.
-
Sum undirkerfi og samsetningar íhluta geta truflað notkun og stjórn þessa búnaðar. Einungis skal nota tengingar sem eru samhæfðar við
þennan búnað. Ráðfærðu þig við 3M fyrir notkun þessa búnaðar með íhlutum eða undirkerfum sem eru frábrugðin þeim kerfum sem er lýst í
Notkunarleiðbeiningum.
-
Nota skal auka varúðarráðstafanir þegar verið er að vinna nálægt tækjabúnaði sem er á hreyfingu (dæmi: á olíuborpöllum), nálægt
rafmagnshættu, við hátt hitastig, við efnahættu, þar sem sprengihætta er eða hættulegt gas, skarpar brúnir, eða undir hlutum sem gætu fallið
á þig eða fallið á verndarbúnaðinn sjálfan.
-
Notaðu Arc Flash eða Hot Works tæki þegar þú vinnur við mjög heitar aðstæður.
-
Forðastu yfirborðsfleti og hluti sem geta skemmt notanda eða búnaðinn.
-
Tryggðu að þú getir fallið niður í frjálsu falli þegar þú vinnur hátt uppi.
-
Aldrei breyta eða umbreyta verndarbúnaði gegn falli. Einungis 3M fyrirtækið eða aðilar sem hafa skriflegt umboð frá 3M fyrirtækinu mega gera
við þennan búnað.
-
Fyrir notkun verndarbúnaðar gegn falli, skal tryggja að neyðaráætlun sé til um það hvernig bregðast skuli samstundis við ef fall eða slys á
sér stað.
-
Ef notandi fellur, skal leita læknishjálpar strax fyrir þann starfsmann sem fallið hefur.
-
Ekki skal nota líkamsbelti til að stöðva fall. Einungis skal nota fullt líkamsbeisli til að stöðva fall.
-
Lágmarka skal sveiflur í kerfinu með því að vinna eins beint fyrir neðan akkerisfestipunktinn eins og mögulegt er.
-
Ef þjálfun fer fram með þessum búnaði verður að nota annað verndarkerfi fyrir fall, þannig að sá sem er í þjálfun sé ekki í hættu við að falla
óvart til jarðar.
-
Alltaf skal nota viðeigandi persónuhlífar þegar verið er að setja upp, nota eða hafa eftirlit með tækinu/varnarkerfinu.
EYÐUBLAÐ NR: 5908303 REV: A
238

Publicidad

Tabla de contenido
loading

Tabla de contenido